Heim  
  Fréttir  
   - Eldri fréttir  
   - Eldri vefur  
  Máltæki  
  Netfangaskrá  
  Myndasafn  
  Síður Önfirðinga  
  Sögusíðan  
  Sólbakki 6  
  Ingjaldur  
  Hafðu samband  
 

 
 

Vestfirskar vefsíður

 
     
 

Björgunarsveitin Sæbjörg
Ísafjarðarbær
Bæjarins besta
Patreksfjörður
Tálknafjörður
Vesturbyggð
Þingeyri
Hólmavík
Súðavík
Suðureyri
Eyraroddi
Grænhöfði
Tankurinn hljóðver á Flateyri
Atvinnuþróunarfélag Vestfjarða
Fræðslumiðstöð Vestfjarða
Vestfirdir.is
Ferðaþjónustan í Reykjanesi
Heydalur
Hótel Núpur
Kirkjuból í Bjarnardal
Hvíldarklettur
Skutull
Siggi Björns
Sjávarútvegur.is

 
 





Fréttir






08.09.2010 kl. 22:58

08. 09. 2010 kl. 22:57 - 8. september 1975 - Dagblaðið, „frjálst, óháð dagblað,“ kom út í fyrsta sinn

Reyir Traustason er ritstjóri DV ásamt syni sinum Jóni Trausta. Ljósm.: Björn Ingi Bjarnason.

08. 09. 2010 kl. 22:57  -  8. september 1975  -  Dagblaðið, „frjálst, óháð dagblað,“ kom út í fyrsta sinn

Dagblaðið, „frjálst, óháð dagblað,“ kom út í fyrsta sinn. Dagblaðið og Vísir voru sameinuð í DV sex árum síðar.

DV er nú að stærstum hluta í eigu Önfirðinga eins og sjá má hér:

  • HLUTHAFAR Í DV EHF.
  • Reynir Traustason, ritstjóri DV 33.04%
  • Lilja Skaftadóttir Hjartar, listaverkasali, búsett í Frakklandi 31.47%
  • Óstofnað félag í eigu Boga Emilssonar, framkvæmdastjóra DV, og Halldórs Jörgenssonar, yfirmanns Microsoft á Íslandi, 15.74%
  • Catalina ehf, í eigu Steingríms Stefnissonar 3.15%
  • Arev verðbréfafyrirtæki hf. 2.36%
  • Jón Trausti Reynisson, ritstjóri DV 2.12%
  • Ingi F. Vilhjálmsson, blaðamaður DV 1.57%
  • Hildur Helga Sigurðardóttir fjölmiðlakona 1.57%
  • Dagmar Una Ólafsdóttir jógakennari 1.57%
  • Meiriháttar ehf, í eigu Sigurdórs Sigurðssonar framkvæmdarstjóra 1.57%
  • Þórir Jökull Þorsteinsson prestur 1.57%
  • Gísli Jónsson hjartalæknir 1.57%
  • Kolbeinn Þorsteinsson, blaðamaður DV 0.79%
  • Víkurós ehf, réttingarverkstæði í Reykjavík, í eigu feðganna Hjartar Erlendssonar og Erlends Hjartarsonar 0.79%
  • Hrafn Margeirsson bifreiðarstjóri 0.79%
  • Sigríður Sigursteinsdóttir ellilífeyrisþegi 0.31%
  • .

    .Nokkrir Önfirðingar hittust á Cafe Catalina í kvöld við söguupprifjun og til stefnumótunar. Ræddu þeir m.a  afmæli DV og snæddu kvöldverð í boði Cafe Catalina sem er hluthafi í DV .  F.v.: Gretar Þór Sæþórsson, Björn Ingi Bjarnason, Steingrímur Stefnisson og Guðmundur J. Sigurðsson.

    Ljósm.: Sigríður Samsonardóttir. 

    Skráð af: Björn Ingi Bjarnason.

    nánar
     
    08.09.2010 kl. 05:42

    08. 09. 2010 kl. 05:37 - Golfmót Önfirðinga á Þorlákshafnarvelli - úrslit

    Jón H. Sigurmundsson í Þorlákshöfn slær hér sigurhöggið sem færði honum vikudvöl í Mannlífs- og menningarsetri Önfirðingafélagsins að Sólbakka 6 á Flateyri næsta sumar. Ljósm.: Björn Ingi Bjarnason.

    08. 09. 2010 kl. 05:37  -  Golfmót Önfirðinga á Þorlákshafnarvelli - úrslit

    Úrslit í Golfmóti Önfirðinga sem haldið var á Þorlákshafnarvelli sunnudaginn 5. september sl. voru þessi,
    en leiknar voru 9 holur þ.e. 10. til 18. hola.
    .
    Önundarfjarðarmeistari í höggleik: Ásbjörn Björgvinsson á 39 höggum
    .
    Punktakeppni:
    Konur:     1. sæti: Sesselja Ingólfsdóttir með 14 punkta
                   2. sæti:  Lilja Garðarsdótir með 12 punkta
                   3. sæti:  Auður Jónsdótir  með 11 punkta
    .
    Karlar:    1. sæti    Jóhannes Ólafur Ellingsen með 20 punkta
                  2. sæti     Jón H. Sigmundsson  með 17 punkta
                  3. sæti    Ásgeir Hjálmar Sigurðsson með 14 punkta 
                  4. sæti.   Stefán Jónsson með 14 punkta.
                Þegar tveir eða fleiri eru jafnir í punktakeppni (m/forgjöf) eru reiknaðar 
                síðustu 6 holurnar og þar voru báðir með 9 punkta, þá þrjá punkta 
                 á síðustu 3 holunum og tvo punkta á síðustu holunni. Grípa þurfti því 
                til þess að láta keppendurna draga um hvor hlyti 3. sætið og kom það 
                í hlut Ásgeirs.
    .
    Veitt voru tvenn verðlaun fyrir að vera næst holu á 11. flöt þ.e. karla og kvenna. 
    Næst holu af kvenmönnum var Auður Jónsdóttir, en af körlum Finnbogi Ernir Ægisson.
    Ein verðlaun voru fyrir að vera næst holu á 16. flöt og þar reyndist Bragi Halldórsson vera 
    næst holu.  
    .
    Að keppni lokinni var vippkeppni þar sem slegið var af 10. teig og inn á 18. flöt. 
    Þar bar sigur úr bítum Jón H. Sigurmundsson og hlýtur að launum aðalvinning mótsins, vikudvöl í húsi 
    Önfirðingafélagsins, Sólbakka 6, næsta sumar.
    .
    Grétar Snær Hjartarson hitti svo nánast ofan í skyrtuvasa formannsins, Björns Inga, í hjartastað,
    , í síðasta höggi mótsins, og brotnuðu gleraugu formannsins sem voru í vasanum. 
    Við verðlaunaafhendinguna var þetta samþykkt sem verðlaunahögg
    og fékk Grétar Snær einnig viku á Sólbakka 6 næsta sumar.
    .
    Grétar Snær Hjartarson
    .
    Jón H. Sigurmundsson t.h. tekur við aðalverðlaunum mótsins, sem er vikudvöl að Sólbakka 6 næsta sumar, úr hendi formanns Önfirðingafélagsins Björns Inga Bjarnasonar.
    Björn Ingi rifjaði upp afrek Jóns þegar hann í sveinaflokki varð Íslandsmeistari í 400 metra hlaupi.
    Ljósm.: Kristján Óli Hjaltason.
    .
    .Grétar Snær Hjartarson slær hér  nokkru fyrir lokahögginð árangursríka. Stefán Jónsson og Jón H. Sigurmundsson fylgjast með. Ljósm.: BIB
    .
    .
    Grétar Snær Hjartarson fylgist með þegar Önfirðingar dæma honum glæsilegu aukaverðlaunin í golfmótinu.
    Ljósm.: Björn Ingi Bjarnason
    .
    Skráð af: Björn Ingi Bjarnason
    nánar
     
    07.09.2010 kl. 20:43

    07. 09 .2010 kl. 20:47 - Námskeið við ræðukvíða

    Þessir miklu félagsmálamenn fyrir vestan hafa aldrei verið með ræðukvíða enda hlaðnir ungmennafélagsanda. F.v.: Bergur Torfason frá Felli, Jón Guðjónsson frá Veðrará (látinn) Ásvaldur Guðmundsson frá  Ástúni og Hilmar Pálsson frá Suðureyri.

    Myndin er tekin á Héraðsþingi H.V.Í. sem haldið var á Núpi í Dýrafirði í byrjun síðasta fjórðungs síðustu aldar. Ljósm.: Björn Ingi Bjarnason.

    07. 09 .2010 kl. 20:47  -  Námskeið við ræðukvíða

    Námskeið við ræðukvíða hefst 21. september hjá Kvíðameðferðarstöðinni og stendur yfir í sex vikur. Námskeiðið er ætlað þeim sem eru haldnir miklum kvíða og vanlíðan gagnvart því að tala fyrir framan hóp fólks, hvort sem er í brúðkaupi, skólafyrirlestri eða í daglegu lífi.

    Þátttakendum, sem skrá sig á námskeiðið, er boðið upp á greiningarviðtal þar sem vandi þeirra er kortlagður og gengið úr skugga um að viðkomandi úrræði henti einstaklingnum.

    Námskeiðið byggir á aðferðum hugrænnar atferlismeðferðar og stjórnendur eru Helena Jónsdóttir sálfræðingur og Unnur Valborg Hilmarsdóttir markþjálfi.

    F.v.: Torfi Bergsson frá Felli, Sighvatur Dýri Guðmundsson frá Höfða, Ásvaldur Magnússon frá Tröð, Birkir Þór Guðmundsson frá Hrauni, Elsa Jónsdóttir frá Hesti, Jón Guðjónsson frá Veðrará og Vigfús Geirdal frá Flateyri. Ljósm.: Björn Ingi Bjarnason.

    Fréttablaðið þriðjudagurinn 7. september 2010.

    Hér skráð af: Björn Ingi Bjarnason

    nánar
     
    07.09.2010 kl. 07:15

    07. 09. 2010 kl. 07:07 - Hvalveiðar hafa gengið mjög vel - Hefjast frá Sólbakka næsta sumar

    Hvalveiðar munu hefjast frá Sólbakka næsta sumar þegar hvalbátur bætist í flota Úlfars Önundarsonar á Sólbakka-Lóni. Smíði hvalbátsins stendur nú yfir í Skipasmíðastöð Úlvars Önundarsonar við Drafnargötu á Flateyri. Ljósm.: Björn Ingi Bjarnason. 

    07. 09. 2010 kl. 07:07  -  Hvalveiðar hafa gengið mjög vel  -  Hefjast frá Sólbakka næsta sumar

    Hvalveiðarnar hafa gengið mjög vel í sumar, að sögn Kristjáns Loftssonar, framkvæmdstjóra Hvals hf. og betur en í fyrra.

    Er helsta ástæðan sú, að sögn Kristjáns, að hvalirnir hafa haldið sig nær landi en í fyrrasumar. Þá hefur veður verið mjög hagstætt til hvalveiða. Vinnslan í Hvalfirði hefur sömuleiðis gengið vel.

    Hvalveiðistöð Hans Ellefsen á Sólbakka um 1900.  Íbúðarhús forstjórans, nú Ráðherrabústaðurinn í Reykjavík, er hvíta húsið um miðja mynd.

    Skráð af: Björn Ingi Bjarnason.

    nánar
     
    06.09.2010 kl. 22:22

    06. 09 2010 kl. 22:17 - Eftirlaunaþeginn Jón Baldvin Hannibalsson fór á kostum í Silfri Egils

    Í Ráðherrabústaðnum við Tjarnargötu í október 1990 þar sem Jóhannes Kristjánsson og Jón Baldvin Hannibalsson fóru á kostum eins og sjá má á berlega á Hendrik Tausen. 

    Önfirðingum var þarna boðið að hitta frægasta brottflutta Önfirðinginn sem er Ráðherrabústaðurinn frá Sólbakka.

    Ljósm.: Björn Ingi Bjarnason.

    06. 09 2010 kl. 22:17   -  Eftirlaunaþeginn Jón Baldvin Hannibalsson fór á kostum í Silfri Egils

    Eftirlaunaþeginn Jón Baldvin Hannibalsson fór á kostum í Silfri Egils í gær þegar hann gerði úttekt á hinni pólitísku stöðu með hálflamaða ríkisstjórn við völd.

    Benti Jón Baldvin á það að Sjálfstæðisflokkurinn væri síður en svo tilbúinn að taka við stjórnartaumum. Sá flokkur bæri stærsta ábyrgð á hruninu en iðraðist einskis. Jón Baldvin sagði augljóst að Davíð Oddsson bæri þar mesta ábyrgð þótt hann væri algjörlega blindur á bresti sína og afglöp.

    Þannig hefði þurft að fjarlægja skúrkinn úr rústum efnahagslífsins með byggingakrana.

    .

    Í Ráðherrabústaðnum í október 1990.

    Í Ráðherrabústaðnum í október 1990.

    Í Ráðherrabústaðnum í október 1990.

    Í Ráðherrabústaðnum í október 1990.

    .Í Ráðherrabústaðnum í október 1990

    Í Ráðherrabústaðnum í október 1990.

    Af: http://www.dv.is/  - Sandkorn.

    Hér skráð af: Björn Ingi Bjarnason

    nánar
     
    06.09.2010 kl. 21:50

    06. 09. 2010 kl. 21:52 - Kynnti sér atvinnulífið á Flateyri

    F.v.: Kristján Erlingsson og Teitur Björn Einarsson, forsvarsmenn Eyrarodda, og Daníel Jakobsson. Ljósm.: bb.is
    .
    06. 09. 2010 kl. 21:52  -  Kynnti sér atvinnulífið á Flateyri
    .
    Daníel Jakobsson, nýráðinn bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar, kynnti sér starfsemi nokkurra fyrirtækja og stofnana
    á Flateyri á fyrsta vinnudegi sínum á fimmtudag.
    .
    Naut hann þar leiðsagnar Eiríks Finns Greipssonar, formanns bæjarráðs og íbúa á Flateyri.
    Þeir félagar heimsóttu meðal annars Grunnskóla Önundarfjarðar, íþróttahúsið, áhaldahúsið, leikskólann Grænagarð
    og Fiskvinnsluna Eyrarodda.
    .
    .
    F.v.: Daníel Jakobsson, Skarphéðinn Ólafsson skólastjóri Grunnskóla Önundarfjarðar,
    og kennararnir Sigurður Hafberg og María Hrönn Valberg.
    Ljósm.: bb.is.
    .
    Af: http://www.bb.is/
    .
    Hér skráð af: Björn Ingi Bjarnason.


    nánar
     
    05.09.2010 kl. 17:31

    05. 09. 2010 kl. 17:27 - Ásbjörn Þ. Björgvinsson er Önfirðingameistari í golfi

    Ásbjörn Þ. Björgvinsson t.h. tekur við sigurlaunum sem Önfirðingameistari í golfi  árið 2010 úr hendi Ægis E. Hafberg.

    Ljósm.: Björn Ingi Bjarnason.

    05. 09. 2010 kl. 17:27  -  Ásbjörn Þ. Björgvinsson er Önfirðingameistari í golfi 2010

    Golfmóti Önfirðinga, sem haldið var á Þorlákshafnarvelli, lauk fyrir stundu og er Ásbjörn Þ. Björgvinsson golfmeistari Önfirðinga árið 2010.

    Fyrri meistarar hafa verið:

    1980  -  Hinrik Kristjánsson

    2001  -  Sveinn Ásgeir Baldursson

    2002  -  Páll Kristjánsson

    2003  -  Páll Kristjánsson

    2004  -  Karl Þórðarson

    2005  -  Stefán R. Dagssson

    2006  -  Stefán R. Dagsson

    .

    Ásbjörn Þ. Björgvinsson, lengst til hægri, tekur ofan eftir keppnina í dag. Á myndinni eru einnig Bragi Halldórsson og Kristján Óli Hjaltason.

    .

    .

    Skráð af: Björn Ingi Bjarnason.

    nánar
     
    05.09.2010 kl. 11:08

    05. 09. 2010 kl. 11:07 - Golfmót Önfirðinga á Þorlákshafnarvelli hafið

    Við upphaf golfmóts Önfirðinga á Þorlákshafnarvelli í morgun. F.v.: Kristján Óli Hjaltason, Ásbjörn Þ. Björgvinsson, Jón Gunnar Stefánsson og Bragi Halldórsson. Ljósm.: Björn Ingi Bjarnason.

    05. 09. 2010 kl. 11:07   -  Golfmót Önfirðinga á Þorlákshafnarvelli hafið

    Golfmót Önfirðinga hófst á slaginu kl. 10:00 í morgun á Golfvelli Þoirlákshafnar. Mjög góð þátttaka er í mótinu og batnandi veður er á svæðinu, þurrt og sólarglenna.

    Aðalvinningur er vikudvöl í Mannlífs- og menningarsetri Önfirðingafélagsins að Sólbakka 6 á Flateyri vikuna 3. - 10. júní 2011 sem er vikan utan um sjómannadagshelgina.

    .

    .

    .

    .

    .

    .

    .

    .

    .

    .

    .

    .

    .

    .

    .

    .

    .

    .

    .

    .

    .

    .

    .

    .

    Skráð af: Björn Ingi Bjarnason.

    nánar
     
    04.09.2010 kl. 16:06

    04. 09. 2010 kl. 15:57 - Golfmót Önfirðinga í Þorlákshöfn 5. september 2010

    Frá Golfmóti Önfirðinga á Þorlákshafnarvelli. F.v.: Ásgeir Guðnason, Kári Jóhannesson, Kristján Ragnarsson og frú og Dagur Ásgeirsson. Ljósm.: Björn Ingi Bjarnason.

    30. 08. 2010 kl. 23:33  -  Golfmót Önfirðinga í Þorlákshöfn 5. september 2010

    Endurreisn hins vinsæla Golfmóts Önfirðinga, sem haldin voru með reisn árin 2003 – 2006 á golfvellinum við Þorlákshöfn, verður á morgun sunnudaginn 5. september. 

    Yfir 30 kylfingar skráð sig til þáttöku, verðlaun streyma að og þegar hefur verið lögð inn “veðurpöntun” á viðeigandi stað.

    Aðalvinningur verður vikudvöl í Mannlífs- og meningarsetri Önfirðingafélagsins að Sólbakka 6 á Flateyri vikuna um Sjómannadaginn,  3. - 10. júní 2011.

    Áhugasömum golfurum og gestum er beint til Þorlákshafnar sunnudaginn 5. september en mótið hefst stundvíslega kl. 10.00.  Þess er óskað að sem flestir forskrái sig til þess að auðvelda undirbúning en skráiningu má senda til:

    Kristjáns Óla Hjaltasonar          sími 660 9503   netfang koh@kroli.is

    eða Grétars Snæs Hjartarsonar        sími 897 6536   netfang gretar@heima.is

    Í Þorlákshöfn er undirbúnngur í höndum þeirra Ægis Hafberg og Böðvars Gíslasonar. 

    Mætum sem flest til mótins

    Forskráum þáttöku til að auðvelda undirbúning

    Mætum tímanlega.

    Með bestu kveðjum,

    f.h. undirbúningsnefndar.

    Kristján Óli Hjaltason og Grétar Snær Hjartarson

    nánar
     
    04.09.2010 kl. 11:28

    04. 09. 2010 kl. 11:27 - Ganga á Þorfinn á morgun sunnudaginn 5. september

    .

    04. 09. 2010 kl. 11:27  -  Ganga á Þorfinn á morgun sunnudaginn 5. september

    Sigríður Magnúsdóttir á Kirkjubóli í Valþjófsdal skrifar:

    Jæja gott fólk.

    Er ekki einhver búinn að segja hvað veðrið er dásamlegt, þetta logn, þetta logn, og hitinn, hann er dásemd. En á morgun (sunnudaginn 5.sept) ætlar Ferðafélag Vestfjarða að ganga á Þorfinn, fjallið hér í Dalnum. Ef veðrið verður eins og spáð er þá verður þetta stórkostlega flott ganga með dýrðlegu útsýni um allan Önundarfjörð..má bjóða þér með ?

    Það verður lagt af stað kl 13:00 frá Grafargili.

    nánar
     
    04.09.2010 kl. 07:51

    04. 09. 2010 kl. 07:47 - Strandsiglingar boðnar út

    .Strandferðaskipið Hekla og millilandaskipið Hofsjökull ásamt Gylli við bryggju á Flateyri. Ljósm.: Björn Ingi Bjarnason.

    04. 09. 2010 kl. 07:47  -  Strandsiglingar boðnar út

    Ríkisstjórnin hefur ákveðið að bjóða út strandsiglingar við Ísland og verður útboð auglýst í næsta mánuði. Siglingaleiðin sem verður auglýst miðast við siglingar milli Reykjavíkur, Ísafjarðar og Akureyrar auk Sauðárkróks og Patreksfjarðar. Siglingar munu spara viðhald á vegum en skipafélögin eru afar ósátt við áformin að því er fram kemur á visir.is. Meðal síðustu verka Kristjáns Möller í embætti samgönguráðherra í ríkisstjórn Íslands var annars vegar að kynna minnisblað um fjármál sveitarfélaga fyrir ríkisstjórninni og ákveða útboð á siglingaleiðum með vörur umhverfis Ísland. Ákvörðun um strandsiglingar var tekin eftir margra mánaða undirbúnings- og samráðsferli, þar sem hugmyndirnar voru kynntar fyrir hagsmunaaðilum og þeim sveitarfélögum sem í hlut eiga.

    Strandsiglingar eru taldar henta svokölluðum þolinmóðum vörum og talið er að slit á vegum og viðhaldskostnaður muni líklega minnka um 100-200 milljónir króna á ári.

    Á visir.is segir að skipafélögin, Eimskip og Samskip, hafi gagnrýnt áform um strandsiglingar og telja m.a að útboð á siglingaleiðum sé óeðlilegt inngrip stjórnvalda á þessum markaði. Stjórnvöld víða um heim hafa hins vegar verið að vinna af því að færa flutninga af vegum yfir á sjó, fljótabáta og járnbrautir, að því er fram kemur í skýrslu Samgönguráðuneytisins um strandsiglingar. Í skýrslunni segir jafnframt að flutningsgjald landflutningsaðila til Vestfjarða sé í kringum 180 þúsund krónur en meðalflutningsgjald með skipi þessa sömu leið sé um 139 þúsund krónur svo þær borgi sig. Það er því ljóst að þetta mun spara flutningsgjöld og má búast við viðbrögðum landflutningsaðila með lækkun á gjöldunum í kjölfar samkeppni frá strandferðaskipinu.

    Ögmundur Jónasson, innanríkisráðherra, hefur tekið við samgöngu- og sveitarstjórnarmálum af Kristjáni Möller. Hann sagðist í samtali við fréttastofu Vísis styðja áform um strandsiglingar og að hann væri hlynntur þessari ákvörðun Kristjáns.

    Af: http://www.bb.is/

    .

    .

    .

    .

    .

    .

    .

    .

    Hér skráð af: Björn Ingi Bjarnason.

    nánar
     
    03.09.2010 kl. 06:47

    03. 09. 2010 kl. 06:45 - Erum að endurheimta þekkingu í handavinnu

    Alltaf er gaman að glíma við eitthvað nýtt og vandasamt, segir Hildur Guðnadóttir, tengdadóttir Flateyrar,  sem rekur Ömmu mús. Hannyrðir hafa verið hennar hálfa líf en hún lærði að hekla fimm ára og þá varð ekki aftur snúið, frekar en vænta mátti. Ljósm.: Morgunblaðið/Ernir.

    03. 09. 2010 kl. 06:45  -  Erum að endurheimta þekkingu í handavinnu

    Amma mús er ný verslun í Ármúlanum. Eigandinn, Hildur Guðnadóttir, tengdadóttir Flateyrar, byrjaði að hekla fimm ára. Lopaæðið mikla og jólaútsaumur að byrja.

    Hvert sem viðfangsefnið er þá er það vandasama alltaf heillandi. Glíma við það sem maður hefur ekki reynt við áður og ná þannig að skapa eitthvað fallegt. Í prjónaskapnum er gaman að glíma við nýjar aðferðir eins og til dæmis kaðlaprjón og alls konar gatamunstur,“ segir Hildur Guðnadóttir hjá Satúrnus við Ármúla í Reykjavík.

    Satúrnus hefur í meira en hálfa öld verið umsvifamikil heildsala með ýmsar hannyrðavörur. Hildur Guðnadóttir eignaðist fyrirtækið fyrir tveimur árum og á sama tíma hóf Ásta Guðmundsdóttir þar störf. Í sl. mánuði voru svo kvíarnar færðar út með opnun smásölu, verslunarinnar Ömmu músar, þar sem handavinnufólk fær í raun allt sem þarf. Þar stendur Sigurbjörg Jóhannesdóttir vaktina en hún hefur starfað í hannyrðaverslunum í fjöldamörg ár og því mörgum vel þekkt. Auk hennar starfa í versluninni Edda Hrönn Gunnarsdóttir og Lára Magnea Jónsdóttir.

    Misstum kynslóðir út

    „Hannyrðamenning þjóðarinnar hefur breyst talsvert á undanförnum árum. Sjálf hóf ég að starfa á þessum vettvangi árið 1998 og hef fylgst vel með síðan þá. Þegar starfsemi húsmæðraskólanna lagðist af hrakaði þessari þekkingu og áhugi á prjónaskap og saumum var minni. Stemningin í þjóðfélaginu var einfaldlega þannig. Við misstum hreinlega nokkrar kynslóðir út. Með efnahagshruninu gerðist það svo að prjónaskapur komst aftur í tísku og ég hef stundum talað um lopaæðið. Nú þykir aftur skemmtilegt að prjóna og fjöldi kvenna – og karla raunar líka – hefur aflað sér þekkingar í því að prjóna og í ýmsu fleiru. Þetta er afar skemmtilegt,“ segir Hildur sem selur meðal annars garn frá norska framleiðandanum Rauma og Design club í Danmörku. Má þar nefna Merino-ull og silki, sem nýtur sérstakra vinsælda um þessa mundir. Þegar kemur svo fram á haustið grípa margir í útsaum. Í Ömmu mús fæst útsaumsefni og garn – sem og útsaumsmyndir sem eru með ýmsu móti. Þá er jólaútsaumurinn nýlega kominn í hús og þykir mörgum ekki seinna vænna að byrja að glíma við þær hannyrðir.

    Góð afslöppun

    „Ég man ekki eftir mér öðruvísi en að ég sé að fást við einhvers konar handverk. Lærði fyrstu handtökin líklega fimm ára gömul þegar ég heklaði litla hringlaga mottu sem ég var afar hreykin af. Mottuna átti ég lengi enda þótt hún sé ekki jafn glæsilega gerð og í barnsminningunni. En upp úr stendur að þarna lærði ég handtökin og að glíma við hannyrðir hefur alltaf verið líf mitt og yndi. Hef bæði búið til ýmislegt fallegt á heimilinu og prjónað og saumað. Þá felst góð afslöppun í öllum hannyrðum fyrir svo utan að alltaf er gaman að glíma við eitthvað nýtt og vandasamt,“ segir Hildur.

    Morgunblaðið föstudagurinn 3. september 2010.

    HIldur Guðnadóttir í hópi glaðra Flateyringa. Ljósm.: Björn Ingi Bjarnason.

    Hér skráð af: Björn Ingi Bjarnason.

    nánar
     
    03.09.2010 kl. 05:50

    03. 09. 2010 kl. 05:43 - Upplyfting á Cafe Catalina í kvöld

    03. 09. 2010 kl. 05:43  -  Upplyfting á Cafe Catalina í kvöld

    Cafe Catalina að Hamraborg 11 í Kópavogi. Ljósm.: Steingrímur Stefnisson.

    Hljómsveitin Æfing á aðsóknarmetið á Cafe Catalina sem og sölumet á drykkjum. Það var sett 10. október 2009. Fyrra metið átti Æfing einnig en það var sett á sjómannadeginum 1998. Ljósm.: Henný Árnadóttir.

    .

    Sjá: http://dl.dropbox.com/u/5910828/frettabref/1998_juni_net.pdf

    .

    .Hljómsveitin Æfing á aðsóknarmetið á Cafe Catalina sem og sölumet á drykkjum. Það var sett 10. október 2009. Fyrra metið átti Æfing einnig en það var sett á sjómannadeginum 1998. Ljósm.: Henný Árnadóttir.

    .

    nánar
     
    02.09.2010 kl. 20:51

    02. 09. 2010 kl. 20:57 - Flateyringar funduðu í kirkjugarðinum

    Í kirkjugarðinum á Eyrarbakka. F.v.: Guðmundur J. Sigurðsson og Björn E. Hafberg. Ljósm.: Björn Ingi Bjarnson.

    02. 09. 2010 kl. 20:57  -  Flateyringar funduðu í kirkjugarðinum

    Flateyringarnir Guðmundur J. Sigurðsson og Björn E. Hafberg brugðu betri dekkjunum undir bílinn síðasta laugardag og fóru í skemmtiferð um Suðurland.

    Þegar nálgaðist Eyrarbakka hringdu þeir í Björn Inga Bjarnason, sem þar býr, og var hann staddur í kirkjugarðinum við myndatökur. Án þess að boða komu sína voru þeir einnig komnir að vörmu dekki í kirkjugarðinn. Var strax sest niður í veðurblíðunni og fundu menn hinn mikla frið sem þarna var þó margir væru nálægir.

    Þremenningarnir eru mjög reyndir félagsmálamenn m.a. allir f.v. formenn Verkalýðsfélagsins Skjaldar á Flateyri en höfðu aldrei fundað á stað sem þessum. Var haft á orði að frá svona staðsettum fundum gæti ekkert lekið, enginn á hleri og ekki enn eftirlitsmyndavélar hvað sem síðar verður.

    F.v.: Björn Ingi Bjarnason og Björn E. Hafberg. Ljósm.: Guðmundur J. Sigurðsson.

    .

    nánar
     
    02.09.2010 kl. 19:35

    02.09. 2010 kl. 19:37 - Helga Kristbjörg fékk veglegan styrk

    .
    Styrkþegarnir tveir, Andri Björn Róbertsson og Helga Kristbjörg Guðmundsdóttir hlutu styrk úr styrktarsjóði Halldórs Hansen Ragnar H. Ragnarsson afhenti styrkina. Mynd: LHÍ
    .
    02.09. 2010 kl. 19:37  -  Helga Kristbjörg fékk veglegan styrk
    .
    Ísfirsk / önfirski harmónikkuleikarinn, Helga Kristbjörg Guðmundsdóttir, hlaut í gær veglegan styrk úr Styrktarsjóði Halldórs Hansen. Styrktarsjóðurinn starfar undir væng Listaháskóla Íslands og veitir árlega styrki til tónlistarnema sem hafa að mati sjóðsstjórnar náð framúrskarandi árangri á sínu sviði. Þetta mun vera í sjöunda sinn sem veittir eru styrkir úr sjóðnum, og er Helga Kristbjörg annar Ísfirðingurinn sem hann hlýtur. Herdís Anna Jónasdóttir söngkona hlaut styrkinn 2006. Þess má geta að það var Ísfirðingurinn Hjálmar H. Ragnarsson, rektor LHÍ, sem afhenti styrkina en einnig hlaut Andri Björn Róbertsson bassabarítón styrk úr sjóðnum. Boðið var til hátíðardagskrár af þessu tilefni þar sem tilkynnt var um verðlaunahafa sjóðsins 2010 og komu þau fram á samkomunni. „Það var mikil stemning að hlusta á flutning þessara ungu tónlistarmanna en þau eiga væntanlega eftir að láta að sér kveða í framtíðinni en bæði stefna þau á tónlistarnám erlendis í haust,“ segir á vef LHÍ.

    Helga Kristbjörg lauk BA-gráðu í harmóníkuleik frá Listaháskóla Íslands síðasta vor en hún er fyrsti nemandi til að ljúka gráðu af því tagi frá tónlistardeild Listaháskólans. Í tilkynningu um styrkveitinguna segir: „Helga Kristbjörg Guðmundsdóttir er fædd og uppalin á Ísafirði. Hún stundaði nám við Tónlistarskóla Ísafjarðar nær óslitið frá 1995-2007 þar sem aðalnámsgrein hennar var harmonikka. Fyrstu árin naut hún leiðsagnar Messíönu Marzellíusdóttur en árið 1999 tók Vadim Fjodorov við harmonikkukennslunni og vorið 2003 lauk hún 6. stigi á hnappaharmonikku. Veturinn 2006-2007 var Hrólfur Vagnsson kennari hennar við skólann. Hún stundaði einnig píanónám um nokkurra ára skeið og lauk miðprófi. Haustið 2004 stundaði Helga tónlistarnám í Frakklandi við tónlistarskólann Centre National & International de Musique & d’Accordéon (la CNIMA) þar sem aðalkennarar hennar voru J. Mornet, Roman Jbanov og Domi Emorine. Helga Kristbjörg hefur komið fram á fjölda tónleika og við ótal önnur tækifæri og hefur einnig starfað sem harmonikkukennari við Tónlistarskóla Ísafjarðar og Tónlistarskóla Hafnarfjarðar. Haustið 2007 hóf Helga Kristbjörg nám við Listaháskóla Íslands undir handleiðslu Tatu Kantomaa og síðar Vadims Fjodorov og lauk þaðan BA-gráðu s.l.
    .
    Af: http://www.bb.is/
    .
    Hér skráð af: Björn Ingi Bjarnason.
    nánar
     
    01.09.2010 kl. 22:41

    01.09. 2010 kl. 22:37 - Leiklistarskóli Kómedíuleikhússins

    Elfar Logi Hannesson, hér sem Gísli Súrsson á Sumarhátíð Vestur-Ísfirðinga á Stokkseyri fyrir nokkrum árum. Ljósm.: BIB

    01.09. 2010 kl. 22:37  -  Leiklistarskóli Kómedíuleikhússins

    Kómedíuleikhúsið hefur stofnað leiklistarskóla sem hefur starfsemi sína í september.

    Um er að ræða alhliða leiklistarnám fyrir alla aldurshópa eða frá 5 ára og uppúr. Sérstakur kynningarbæklingur um skólann er væntanlegur úr prentun á allra næstu dögum og verður sendur sjóðheitur inná öll heimili á norðanverðum Vestfjörðum. Skólinn er til húsa í Listakaupstað, Norðurtangahúsinu, á Ísafirði og þann 11. september verður opið hús þar sem áhugasamir geta kynnt sér skólann. Sama dag hefst skráning á námskeið skólans en fyrstu námskeiðin hefjast 20. september en skólasetning verður þann 19.

    Aðalkennarar við Kómedíuskólann eru þeir Elfar Logi Hannesson og Ársæll Níelsson sem báðir eru menntaðir í Kómedíuskólanum í Kaupmannahöfn. Nánari upplýsingar um Leiklistarskóla Kómedíuleikhússins verður að finna hér á heimasíðunni á næstu dögum. Gaman er að geta þess að Leiklistarskóli Kómedíuleikhússins er fyrsti leiklistarskóli Vestfjarða.

    En áhugasamir mega alveg byrja að skrá sig eða fá nánari upplýsingar með því að senda okkur tölvupóst á netfangið komedia@komedia.is

    Skráð af: Björn Ingi Bjarnason.

    nánar
     
    01.09.2010 kl. 07:18

    01. 09. 2010 kl. 07:17 - Minni skerðing á dragnótaveiðum á Önundarfirði

    Séð út Önundarfjörð Ljósm.: Björn Ingi Bjarnason.

    01. 09. 2010 kl. 07:17  -  Minni skerðing á dragnótaveiðum á Önundarfirði

    Ákveðið hefur verið í sjávarútvegsráðuneytinu að fresta að hluta reglugerð um bann við dragnótaveiðum á þremur innfjörðum á Vestfjörðum og Norðurlandi.

    Þannig verður bannið í Önundarfirði, Miðfirði og Skagafirði fært utar í firðina heldur en ráðgert var.

    Eftir samræður við fulltrúa dragnótamanna og fleiri hagsmunaaðila hefur verið ákveðið í ráðuneytinu að fara utar með bannið. Þessi tilhögun gildir til áramóta og verði annað ekki ákveðið á tímanum þangað til öðlast fyrri ákvörðun gildi. Reglugerðin um skertar dragnótaveiðar var sett í maímánuði, en gildistöku var síðan frestað til 1. september.

    Morgunblaðið miðvikudagurinn 1. september 2010.

    Hér skráð af: Björn Ingi Bjarnason.

    nánar
     
    31.08.2010 kl. 22:40

    31. 08. 2010 kl. 22:37 - Flateyringar meðal 22 umsækjenda um stöðu fiskistofustjóra

    Flateyringurinn Gísli Rúnar Gíslason við veiðar. Ljósm.: Einksafn.

    31. 08. 2010 kl. 22:37  -  Flateyringar meðal 22 umsækjenda um stöðu fiskistofustjóra

    Flateyringurinn Guðmundur Einar Jónsson.Ljósm.: Einkasafn.

    Þann 27. ágúst 2010 rann út frestur til að skila umsókn um embætti fiskistofustjóra.

    Umsækjendur eru eftirfarandi:

    Aðalsteinn Þorsteinsson

    Dagmar Sigurðardóttir

    Davíð Egilson

    Eyþór Björnsson

    Gísli Rúnar Gíslason

    Grétar Már Jónsson

    Guðmundur Einar Jónsson

    Gylfi Ástbjartsson

    Halldór Ó. Zoëga

    Haukur Nikulásson

    Ingólfur Sveinsson

    Jón Örn Stefánsson

    Pétur Bjarnason

    Sævar Ásgeirsson

    Valbjörn Steingrímsson

    Valtýr Hreiðarsson

    Viðar Ólason

    Vilhjálmur Wium

    Þorsteinn Þorsteinsson

    Þórður Már Jónsson

    Þórður Heimir Sveinsson

    Þórhallur Ottesen

    Af: http://www.stjornarrad.is/

    Hér skráð af: Björn Ingi Bjarnason.

    nánar
     
    31.08.2010 kl. 20:33

    31. 08. 2010 kl. 20:33 - Af ráðum Flateyrarlækna

    Gleðigjafarnir - F.v.: Íris Sveinsdóttir Ólafur Ragnarsson og Lýður Árnason á Sólbakka 6. Ljósm.: Björn Ingi Bjarnason

    31. 08. 2010 kl. 20:33  -  Af ráðum Flateyrarlækna

    Rúmlega tíu þúsund manns tóku þátt í Reykjavíkurmaraþoninu á dögunum. Þátttakan var með besta móti, sem helst í hendur við aukinn áhuga landans á hreyfing og heilbrigðum lífsstíl.

    Aldrei of seint að byrja

    „Markmið mitt var fara tíu kílómetrana á innan við klukkustund og er mjög ánægður með að það tókst,“ segir Dagur B. Eggertsson borgarfulltrúi og fyrrum læknir á Flateyri. Áður en að Reykjavíkurmaraþoninu kom ætlaði hann sér að stunda æfingar af kappi með það fyrir augum að vera í sínu allra besta formi.

    „Í dagsins önn er í mörg horn að líta og því náði ég ekki að æfa jafn oft og ég vildi. Ég hleyp þó alltaf annað slagið og æfi í World Class,“ segir Dagur sem í hlutverki læknis kveðst stundum ráðleggja skjólstæðingum sínum að taka sér tak og hreyfa sig reglulega.

    „Það er aldrei oft seint að byrja og hreyfing gerir öllum gott, sama í hvaða formi hún er og á hvaða aldri fólki er. Þekkt er að stundum skrifaði Lýður Árnason, læknir á Flateyri í rúman áratug, upp á hund fyrir sjúklinga sem til hans leituðu; ráðlagði þeim með öðrum orðum sagt að fá sér hund sem þyrfti að fara með í gönguferðir sem auðvitað getur verið þjóðráð. Útiveran er góð.“

    Dagur B. Eggertsson fyrrum læknir á Flateyri. Ljósm.: Morgunblaðið

    Heimild: Morgunblaðið - Lifun/Heilsa

    Hér skráð af: Björn Ingi Bjarnason.

    nánar
     
    30.08.2010 kl. 23:35

    30. 08. 2010 kl. 23:33 - Golfmót Önfirðinga í Þorlákshöfn 5. september 2010

    Frá Golfmóti Önfirðinga á Þorlákshafnarvelli. Ljósm.: Björn Ingi Bjarnason.

    30. 08. 2010 kl. 23:33  -  Golfmót Önfirðinga í Þorlákshöfn 5. september 2010

    Fyrirhuguð er endurreisn hins vinsæla Golfmóts Önfirðinga sem haldin voru með reisn árin 2003 – 2006 á golfvellinum við Þorlákshöfn.  Haft var samband við nokkra kylfinga sem þátt tóku flest árin og var greinilegur söknuður að mótin voru ekki haldin undanfarin 3 ár.

    Yfir 30 kylfingar skráð sig til þáttöku, verðlaun streyma að og þegar hefur verið lögð inn “veðurpöntun” á viðeigandi stað.

    Áhugasömum golfurum og gestum er beint til Þorlákshafnar sunnudaginn 5. september en mótið hefst stundvíslega kl. 10.00.  Þess er óskað að sem flestir forskrái sig til þess að auðvelda undirbúning en skráiningu má senda til:

    Kristjáns Óla Hjaltasonar          sími 660 9503   netfang koh@kroli.is

    eða Grétars Snæs Hjartarsonar        sími 897 6536   netfang gretar@heima.is

    Í Þorlákshöfn er undirbúnngur í höndum þeirra Ægis Hafberg og Böðvars Gíslasonar. 

    Mætum sem flest til mótins

    Forskráum þáttöku til að auðvelda undirbúning

    Mætum tímanlega.

    Með bestu kveðjum,

    f.h. undirbúningsnefndar.

    Kristján Óli Hjaltason og Grétar Snær Hjartarson.

    nánar
     
    Síða 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 22 23 24 25 26 27 28 29 30 31 32 33 34 35 36 37 38 39 40 41 42 43 44 45 46 47 48 49 50 51 52 53 54 55 56 57 58 59 60 61 62 63 64 65 66 67 68 69 70 71 72 73 74 75 76 77 78 79 80 81 82 83 84 85 86 87 88 89 90 91 92 93 94 95 96 97 98 99 100 101 102 103 104 105 106 107 108 109 110 111 112 113 114 115 116 117 118 119 120 121 122 123 124 125 126 127 128 Næsta síða

     
     

     
     

    Saga Félagsins

     
         
      1993
    1994
    1995
    1996
    1997
    1998
    1999
    2000
    2001
    2002
    2003
    2004
    2005
    2006
    2007
    2008
    2009
    2010
     
     

     
     

    Síður Önfirðinga

     
         
     

    Hér getur þú sent inn tengilinn þinn til að vera sýnilegur öðrum. Til að koma tenglinum á skráðu þig hér og tenglinum verður bætt á listann.

    Ásbjörn Björgvinsson
    Ágúst Pétursson Vagnheimar
    Catalina


    Eiríkur Finnur Greipsson
    Eyraroddi
    Eyþór Jóvinsson
    Félagsbær
    Gistiheimili Áslaugar og Faktorshúsið í Hæstakaups
    Gógó
    Gretar Þór Sæþórsson
    Guðmundur Jónas Kristjánsson
    Guðrún Pálsdóttir
    Guðjón Hermannsson
    Haraldur Sturlaugsson
    Hekla Björg Jónsdóttir
    Kirkjuból í Valþjófsdal 
    Kristján Ásgeirsson
    Kvenfélag Mosvallahrepps
    Magnea Kristjana Guðmunsdóttir
    Magni Rúnar Magnússon
    Páll Önundarson
    Sigurður Björnsson
    Sigurður Hafberg
    Stokke Kommune
    Sölvi Bragason
    Valtýr Gíslason
    Veflausn.is
    Þorsteinn Traustason
    Önfirðingafélagið í Reykjavík

    Önundur H. Pálsson

     
     


    Önfirðingafélagið í Reykjavík - flateyri(hjá)flateyri.is